Miðbæjarkortið
Gamla Miðbæjarkortið fær nýtt og spennandi líf! Nú er kortið komið beint í símann, í Apple Wallet eða Google Pay, þannig að þú getur greitt á einfaldan hátt og aldrei týnt inneigninni þinni.
Skoðaðu ferliðEkki missa af sérkjörunum, virkjaðu þitt Miðbæjarkort í dag!


Ekki missa af sérkjörunum, virkjaðu þitt Miðbæjarkort í dag!
Ferlið að kaupa gjafabréf




Gjafaumslög með Miðbæjarkortinu
Miðbæjarkortið er einnig hægt að fá í gjafaumslagi. Þú getur nálgast það eða fengið aðstoð við kaupin á eftirtöldum stöðum:
- Konungskaffi
Fyrir fjölda pantanir þarf að hafa samband við kort@midbaerselfoss.is sem klárar allt ferlið með þér.

Virkir afslættir
Þeir sem eru með Miðbæjarkortið í símanum geta fengið bæði sérkjör sent beint í símann, netfangið eða séð hér á vefnum hvaða sérkjör og kaupaukar eru í boði hverju sinni.
Fröken Selfoss – Gos, 0% bjór, glas af húsvíni eða bjór á krana fylgir frítt með sé keyptur einn aðalréttur að lágmarki.
Gildir út janúar 2026 alla daga vikunnar, einn drykkur á hvern korthafa.
Risið Vínbar – 2 fyrir 1 af Víking Lite frá 18-20 á fimmtudögum út janúar 2026.
Miðbar – 2 fyrir 1 af Víking Lite alla fimmtudaga út janúar 2026.
Gullfoss – 15% afsláttur af öllu skarti út janúar 2026.

Algengar spurningar
Það á að vera auðveld skref að sækja eða kaupa Miðbæjarkortið. Hér til hliðar eru svör við hugsanlegum spurningum sem auðveldar þér ferlið að sækja Miðbæjarkortið.
Hvenær fæ ég Miðbæjarkortið sent?
Miðbæjarkortið er sent um hæl með tölvupósti. Ef þú sérð það ekki í inboxinu, athugaðu þá í ruslpóstinn (spam, junk-mail).
Ef ekki sendu okkur línu á kort@midbaerselfoss.isHvar kaupi ég Miðbæjarkortið?
Hér á vefnum er hægt að skrá sig eða kaupa kortið rafrænt allt árið um kring en einnig verður það í boði í gjafaumslagi hjá Konungskaffi.
Hvernig greiði ég með kortinu?
Þú framvísar kortinu og verslanir hafa mismunandi leiðir til að taka á móti því.
Get ég pantað sem gjöf fyrir allt starfsfólkið mitt?
Já það er ekkert mál, hvort sem þú vilt fá það í gjafaumslagi eða rafrænt, þá sendir þú okkur nafn og netfang starfsmanna og við sendum það á þeim tíma sem þó óskar eftir.
Hvar get ég notað Miðbæjarkortið?
Miðbæjarkortið virkar á öllum veitingastöðum og verslunum í miðbæ Selfoss.
Hvað geri ég með gamla gjafabréfið frá Miðbæ Selfoss?
Konungskaffi tekur á móti öllum gömlum gjafabréfum og færir sömu upphæð yfir í Miðbæjarkortið.