Aðalstræti 9

Reykjavík, 1902-1967

Húsið sem stóð við Aðalstræti 9 í Reykjavík er upprunnið úr elsta hjarta borgarinnar. Aðalstræti er líka elsta gatan, lá á milli gamla Reykjavíkurbæjarins í suðri niður í Grófina þar sem reykvískir sjómenn höfðu uppsátur. Hús Innréttinganna, iðnfyrirtæki sem Danakonungur kom á laggirnar, voru reist við götuna á miðri 18. öld en starfsemi þeirra varð hvati að þéttbýlismyndun á svæðinu. Fyrsta húsið að Aðalstræti 9 var einmitt reist fyrir Þorkel Bergmann, forstjóra Innréttinganna. 

Forstjórahúsið, oft nefnt Bergmannsstofa, var farið að láta mjög á sjö um aldamótin 1900 enda þá 150 ára gamalt. Árið 1902 keyptu það tveir kaupmenn, Erlendur Erlendsson og Reinhold Andersson, með það að markmiði að rífa niður. Erlendur (1868-1953) var frá Hraunhreppi í Mýrarsýslu en fluttist til ört vaxandi höfuðstaðarins á síðustu árum 19. aldar. Hann stofnaði þar verslun en hélt áfram búrekstri í Grafningi og á Kjalarnesi sem um leið gerði honum kleift að bjóða Reykvíkingum upp á ferskar landbúnaðarafurðir. Reinhold (1863-1948) var sænskur klæðskeri sem hafði freistað gæfunnar árið 1889 með því að leggja land undir fót og stunda iðn sína á Íslandi. Varð hann m.a. kunnur sem einn fremsti hönnuður einkennisbúninga á landinu.

Nýtt hús var reist strax á árinu 1902, tvílyft grindarhús með risi og tveimur sambyggðum kvistum. Þegar Bergmannsstofa var rústir einar stóðu upp úr hrúgunni voldugir, viðarnegldir eikarbitar, 12 tommu breiðir, tjargaðar veggþiljur og legur úr gömlum spunavélum Innréttinganna. Allt var þetta endurnýtt í burðarvirki hinnar nýju byggingar sem rúmaði alls fjórar íbúðir og 19 herbergi, auk verslunarhúsnæðis á jarðhæðinni og veitingahúss í bíslagi við norðurhliðina.

Þeir Erlendur og Reinhold starfræktu svo verslanir sínar á jarðhæðinni, þ.e. Aðalstrætismegin og gegnt gamla kirkjugarðinum Víkurgarði sem nú nefnist Fógetagarður eftir styttunni af Skúla fógeta Magnússyni, upphafsmanni Innréttinganna. Reinhold bjó svo sjálfur með fjölskyldu sinni á efri hæðinni sem einnig var nýtt til útleigu. Erlendur dvaldi hins vegar ekki lengi í Aðalstræti heldur seldi eignarhlut sinn árið 1905. Kaupandinn var þýski kaupmaðurinn Richard Braun sem starfrækti þar verslun sem ýmist nefndist Hamborg eða Braunsverslun. Síðar keypti Braun  verslunarhús á Akureyri sem hefur jafnframt verið endurreist á Selfossi en það var síðar þekkt sem Hótel Gullfoss.

Aðalstræti 9 var svo upp frá miðri 20. öld oft þekkt fyrir veitingahús það sem var rekið í norðurhlutanum, Gildaskálann. Á stríðsárunum 1939-45 varð hann kunnur sem eitt helsta veitingahús Reykvíkinga og þá, jafnt sem síðar, vinsælt öldurhús erlendra hermanna. Á sjöunda áratugnum voru bandarískir dátar einkar þaulsætnir í Gildaskálanum svo og í Þórskaffi en þar skipaðist í sveitir eftir kynþáttum, þeldökkir í hinum fyrrnefnda og hvítir í þeim síðarnefnda. Skarst oft í odda milli þessara hópa

þar sem hinum hvítu þótti þeir ekki njóta sömu vinsælda í augum íslenskra kvenna. Haustið 1965 var svo ófriðsamt í og fyrir utan Gildaskálann að forsíður dagblaða slógu upp fyrirsögnum um „Alabama í Aðalstræti“, með vísan í þær kynþáttaóeirðir sem þá loguðu í mörgum suðurríkjum Bandaríkjanna.

Tveimur árum síðar brann Aðalstræti 9. Laust eftir klukkan eitt, aðfaranótt 1. nóvember 1967 barst slökkviliði tilkynning um að eldur hefði blossað upp í eldhúsi Gildaskálans. Eldsmaturinn var mikill í hinu gamla timburhúsi og tókst með naumindum að bjarga íbúum frá rishæð hússins. Húsið var í kjölfarið rifið niður og reis nýtt steypt hús við Aðalstræti 9 sem hlaut nafnið Miðbæjarmarkaðurinn. Þegar kranabómurnar lumbruðu á viðargrind og útveggjum kom á ný í ljós 200 ára gamall byggingarviður frá Bergmannsstofu og var heillegustu bitunum bjargað frá förgun og þeir fluttir á Árbæjarsafn. 

Heimildir: 

Vísir 1.11.1967.

Tíminn 12.10.1968. Þorsteinn Jónsson: Reykvíkingar. Fólkið sem umbreytti Reykjavík úr bæ í borg. Aðalstræti – Bergstaðastræti 8.  Reykjavík 2011.

Skoða fleiri hús

Selfossbíó

Um húsið
Smella til að stækka mynd

Kolviðarhóll

Um húsið
Smella til að stækka mynd

Hótel Oddeyri

Um húsið
Smella til að stækka mynd

Hótel Ísland

Um húsið
Smella til að stækka mynd

Hótel Hekla

Um húsið
Smella til að stækka mynd

Hótel Borgarnes

Um húsið
Smella til að stækka mynd

Hótel Akureyri

Um húsið
Smella til að stækka mynd

Horngrýti og Turnhúsið

Um húsið
Smella til að stækka mynd

Glasgow húsið

Um húsið
Smella til að stækka mynd

Fell

Um húsið
Smella til að stækka mynd

Evanger verksmiðjan

Um húsið
Smella til að stækka mynd

Aðalstræti 9

Um húsið
Smella til að stækka mynd

Uppsalir

Um húsið
Smella til að stækka mynd